Takk fyrir frábæra helgi. Gaman að sjá hvað er það var mikill áhugi og þátttaka í leikunum.
Sigurvegari TF útileika ÍRA árið 2026 er Einar Kjartansson, TF3EK með 64.902 heildarpunkta. Í öðru sæti er Kristján J. Gunnarsson, TF4WD með 57.528 heildarpunkta og í 3. sæti er Eiður K. Magnússon, TF1EM með 40.482 heildarpunkta. Hamingjuóskir til þeirra!
Fjöldi heildarpunkta er gefinn upp með fyrirvara, þar sem leikjavefurinn verður opinn til leiðréttinga til kl. 18:00 sunnudaginn 16. ágúst. Þá liggja endanlegar stigatölur fyrir.
Fyrirspurnir eða athugasemdir/ábendingar má senda á vefslóðina: www.ira.is
Þakkir til Hrafnkels Sigurðssonar, TF8KY fyrir frábæran leikjavef sem og þakkir til allra sem tóku þátt í TF útileikunum árið 2026.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2026-08-09 13:01:462026-08-09 13:11:18TF ÚTILEIKARNIR ERU Á FULLU.
Hafa má sambönd má sambönd hvenær sem er á leikjatímanum, svo fremi að a.m.k. 8 klst. séu liðnar frá fyrra sambandi.
Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt.
Stjórn ÍRA.
Skemmtileg mynd frá útileikunum í fyrra (2025) þegar TF1FT var staddur á Melrakkaslétu milli Öxarfjarðar og Þistilfjarðar. Hann notaði eins bands loftent á 80 og 160 m, en Yaesu ATAS 12A á 40 m og Yaeus FT-710 sendi-/móttökustöð. Ljósmynd: TF1FT.
Skemmtileg stemning var í Skeljanesi í gærkvöldi, góðar umræður og góð mæting. Sérstakur gestur okkar var Loftur E. Jónasson, TF3LJ / VE2AO sem hefur verið búsettur um árabil í Kanada. Erlendir gestir okkar voru YL-OM hjónin François van Laarhoven, PA1JFR og Hélène van Laarhoven, PA2HE frá Breda í Hollandi. Þau þekkja vel Elínu Sigurðardóttur, TF2EQ frá því að hún stundaði háskólanám í landinu, en hún var m.a. félagsmaður í sama amtörklúbbi og þau. Vel hittist á að Pier Albert Kaspersma, TF1PA (sem er hollenskur að uppruna) mætti á staðinn og var því töluð hollenska (að mestu) upp frá því. Þau voru mjög hrifin af aðstöðu félagsins.
Annars var mikið rætt um TF útileikana og bendir allt til góðarar þátttöku, en leikarnir verða haldnir um þessa helgi (7.-9. ágúst) og hefjast í dag (föstudag) kl. 18:00. Ljóst er að margir verða á ferðinni og munu taka þátt víða að á landinu. Mathías Hagvaag, TF3MH QSL stjóri ÍRA mætti með magn af innkomnum QSL kortum á staðinn og raðaði í hólf félagsmanna.
Þá kom Sigurður Óskar Óskarsson, TF2WIN með Icom IC-718 HF stöð sem sendi út á skertu afli. Stöðin var sett i samband við gerviálag (og síðar loftnet) í fjarskiptaherbergi TF3IRA. Í ljós kom, að um var að ræða stillingaratriði sem var lagað á staðnum. Loks kom Hans Konrad Kristjánsson, TF3FG með úrval af margskonar loftnetstengjum („N“, „PL“ o.fl.) sem hann fékk nýlega til landsins sem viðstöddum bauðst að kaupa við hagstæðu verði.
Þakkir til Sveins Goða Sveinssonar, TF3ID fyrir að annast kaffiveitingar. Alls mættu 22 félagsmenn og 4 gestir í Skeljanes þetta ágæta sumarkvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
Hressir að vanda! Guðjón Már Gíslason TF3GMG, Þorvaldur Bjarnason TF3TB og Einar Kjartansson TF3EK.Loftur E. Jónasson TF3LJ/VE2AO, François van Laarhoven, PA1JFR, Sigurður Óskar Óskarsson TF2WIN og Hélène van Laarhoven, PA2HE.Finnur Tómasson TF1FT og Georg Kulp TF3GZ voru spenntir að taka þátt í TF útileikunum.Pier Albert Kaspersma TF1PA og François van Laarhoven, PA1JFR.Loftur E. Jónasson TF3LJ/VE2AO, Kjartan Birgisson TF1ET, Markus Johann Pluta TF3MJP, Sigurður Óskar Óskarsson TF2WIN og Sveinn D. Björnsson TF2-019 skoða Icom IC-718 HF stöðina í fjarskiptaherbergi TF3IRA.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2026-08-07 10:05:182026-08-07 10:31:47OPIÐ HÚS VAR Í SKELJANESI.
Síðustu fjarskiptaleikar ÍRA á árinu verða haldnir helgina 7.-9. ágúst. Það eru TF útileikarnir og hefjast þeir kl. 18:00 laugardaginn 7. ágúst kl. 18:00 og lýkur kl. 18:00 sunnudaginn 9. ágúst.
Einar Kjartansson TF3EK sigraði og varð í 1. sæti í TF útileikunum í fyrra (2025) með alls 42.425 heildarstig. Myndin er af bifreið Einars þgar hann var staddur á Breiðamerkursandi. Ljósmynd: TF3EK.
European HF Championship keppnin fór fram laugardaginn 1. ágúst. Þátttaka var í boði á tali og/eða morsi á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Um var að ræða 12 klst. keppni sem hófst á hádegi og lauk á miðnætti. Markmið keppninnar er að stuðla að samböndum á milli stöðva með QTH innan Evrópu.
Félagsstöðin, TF3W var QRV og virkjaði Sigurður Jakobsson, TF3CW stöðina frá Skeljanesi, bæði á morsi og tali. Hann keppti í einmenningsflokki á háafli á CW og SSB.
Fjöldi sambanda varð alls 1000. Skipting: 75% á morsi og 25% á SSB. Fjöldi margfaldara: 213 og heildarfjöldi punkta: 211.509. Skilyrði voru þokkaleg á 15, 20 og 40 metrum, en engin á 10 metrum og ekki sérstök á 80 metrum.
Þetta er góður árangur miðað við aðstæður! Sérstakar þakkir til Sigurðar R. Jakobssonar, TF3CW fyrir að virkja stöðina.
Stjórn ÍRA.
TF3CW virkjaði félagsstöðina TF3W á morsi og tali frá Skeljanesi í European HF Championship keppninni 2026.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2026-08-02 14:14:042026-08-02 14:19:38TF3W Í EUROPEAN HF CHAMPIONSHIP 2026.
Opið hús var í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 30. júlí.
Góðar umræður voru m.a. um 2 metra bandið og notkunna á D-Star (m.a. Icom og Kenwood), C4FM (Yaesu) og DMR (ýmsir framleiðendur) – en leyfishafar dreifast m.a. á þessi þrjú „kerfi“, auk almennrar notkunar á tíðnum á FM á 2 metra bandinu. Fram kom, að menn voru ekki vissir hvort stafræni D-Star endurvarpinn í Bláfjöllum er QRV (sem hefur gátt yfir netið út í heim); QRG 439.950 MHz (RX) og 434.950 MHz (TX) -5 MHz. Hins vegar er DRM endurvaripinn TF3DMR í Skeljanesi QRV og einnig var staðfest, að menn eru að nota C4FM (System Fusion) kerfið.
Þá eru félagarnir m.a. að útbúa bílana fyrir TF útileikana sem nálgast. Þeir verða þetta árið haldnir til prufu helgina eftir verslunarmannahelgi; 7.-9. ágúst. Menn ætla að nota Hamstick stangarnet og/eða endafædd vírloftnet þar sem leikarnir fram á 160 m., 80 m., 40 m. og 60 m. Aðrir ætla að taka þátt frá heimastöðvum, sumarbústöðum, hjólhýsum o.fl.
Loks var rætt um European HF Championship keppnina um helgina. Þetta er aðeins 12 klst. keppni á CW og/eða SSB þar sem Evrópustöðvar keppa innbyrðis innan Evrópu. Hún hefst á laugardag 1. ágúst kl. 12:00 og lýkur kl. 23:59.
Erlendur gestur félagins var Berthold Bruckhoff, DO1BBM frá Marburg/Lahn í Þýskalandi. Berthold er á skemmtilegum Volkswagen ferðabíl sem er vel útbúinn tækjum og loftnetum. Hann sýndi okkur m.a. TX-500 HF stöð frá Lab 599 sem hann notar ásamt Icom 7100 sem vinnur á HF, VHF og UHF. Einar Kjartansson, TF3EK á einnig TX-500 stöð sem hann fer með á fjöll í SOTA vinnu.
Þakkir til Guðjóns Más Gíslasonar, TF3GMG fyrir afbragðsgott kaffi og og meðlæti og þakkir til Hans Konrads Kristjánssonar, TF3FG og Jónasar Bjarnasonar, TF3JB fyrir ljósmyndir.
Alls mættu 24 félagar og 3 gestir í Skeljanes þetta ágæta og veðurmilda sumarkvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
Gísli Guðnason TF3MH, Þór Eysteinsson TF3TE, Mathías Hagvaag TF3MH, Markus J. Pluta TF3MJP, Sigurður Ó. Óskarsson TF2WIN, Guðjón Már Gíslason TF3GMG, Einar Kjartansson TF3EK, Guðmundur Birgir Pálsson TF3AK og Einar Sandoz TF3ES.Einar Sandoz TF3ES, Pier Albert Kaspersma TF1PA, Berthold Bruckhoff DO1BBM og Eiður K. Magnússon TF1EM.Benedikt Sveinsson TF3T, Sigurður Ó. Óskarsson TF2WIN, Gísli Guðnason TF6MK, Eiður K. Magnússon TF1EM og Wilhelm Sigurðsson TF3AWS.Bjarni Halldórsson, Sigurður Ó. Óskarsson TF2WIN og Þór Eysteinsson TF3TE.Þór Eysteinsson TF3TE og Berthold Bruckhoff DO1BBM.Ferðabifreið DO1BBM er önnur frá vinstri á bílastæðinu. Á myndinni má sjá veglegt HF loftnet Bertholts.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2026-07-31 15:56:042026-07-31 16:19:17OPIÐ HÚS VAR Í SKELJANESI.
RSGB „Islands On The Air“ – IOTA keppnin – fór fram um helgina [25.-26. júlí]. Þátttaka var í boði á tali og/eða morsi á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Markmið keppninnar er að stuðla að samböndum á milli stöðva með QTH á eyjum og milli stöðva með QTH annarsstaðar (í heiminum). Ísland hefur þrjú IOTA númer, EU 021 (landið sjálft), EU-071 (Vestmannaeyjar) og EU-168 (aðrar eyjar umhvefis Ísland).
Félagsstöðin, TF3W var QRV og virkjaði Sigurður Jakobsson, TF3CW stöðina frá Skeljanesi, bæði á morsi og tali (EU-021). Hann keppti í blönduðum einmenningsflokki (CW/SSB), háafli.
Fjöldi sambanda varð alls 1.936 m.v. 19 klst. viðveru. Fjöldi margfaldara var 224 og heildarfjöldi punkta 3.475.360. QSO hlutfall: 76% á CW og 24% á SSB. Bestu böndin voru 15 og 20 metrar sem voru samals með 79% sambanda.
Þetta er glæsilegur árangur! Sérstakar þakkir til Sigurðar R. Jakobssonar, TF3CW fyrir að virkja stöðina.
Stjórn ÍRA.
Sigurður R. Jakobsson TF3CW virkjaði félagsstöðina TF3W í IOTA keppninni 2026.
AFMÆLISKAFFI ÍRA LAUGARDAG 15. ÁGÚST.
Í tilefni af 80 ára afmæli ÍRA býður félagið upp á veislukaffi í Skeljanesi þann 15. ágúst frá kl. 14-17.
Stjórn ÍRA býður alla félagsmenn hjartanlega velkomna í félagsaðstöðuna, að þiggja góðar veitingar og fagna saman stórafmæli félagsins.
Stjórn ÍRA.
TF ÚTILEIKAR ÍRA 2026.
Kæru félagar!
Takk fyrir frábæra helgi. Gaman að sjá hvað er það var mikill áhugi og þátttaka í leikunum.
Sigurvegari TF útileika ÍRA árið 2026 er Einar Kjartansson, TF3EK með 64.902 heildarpunkta. Í öðru sæti er Kristján J. Gunnarsson, TF4WD með 57.528 heildarpunkta og í 3. sæti er Eiður K. Magnússon, TF1EM með 40.482 heildarpunkta. Hamingjuóskir til þeirra!
Fjöldi heildarpunkta er gefinn upp með fyrirvara, þar sem leikjavefurinn verður opinn til leiðréttinga til kl. 18:00 sunnudaginn 16. ágúst. Þá liggja endanlegar stigatölur fyrir.
Fyrirspurnir eða athugasemdir/ábendingar má senda á vefslóðina: www.ira.is
Þakkir til Hrafnkels Sigurðssonar, TF8KY fyrir frábæran leikjavef sem og þakkir til allra sem tóku þátt í TF útileikunum árið 2026.
F.h. stjórnar ÍRA,
Jónas Bjarnason, TF3JB
formaður
TF ÚTILEIKARNIR ERU Á FULLU.
Útileikarnir 2026 eru í fullum gangi og lýkur í dag, sunnudag 9. ágúst kl. 18:00.
Félagsstöðin TF3IRA var starfrækt frá hádegi í gær (laugardag) og verður aftur starfrækt í eftirmiðdaginn í dag, sunnudag.
Alls voru 15 TF kallmerki skráð í leikana kl. 13:00 í dag og fjöldi sambanda var kominn upp í 307.
Ath. að hægt er að skrá sig til þátttöku allan keppnistímann.
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
TF ÚTILEIKARNIR ERU BYRJAÐIR.
Útileikarnir 2026 byrjuðu í gær (föstudag) kl. 18:00 og verða til sunnudags kl. 18:00.
14 TF kallmerki voru þegar skráð í morgun (laugardag) kl. 09 og þá höfðu 42 sambönd verið skráð í leikjagrunninn. Hægt er að skrá sig hvenær sem er á tímabilinu. Vefslóðin er: https://leikar.ira.is/
Hafa má sambönd má sambönd hvenær sem er á leikjatímanum, svo fremi að a.m.k. 8 klst. séu liðnar frá fyrra sambandi.
Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt.
Stjórn ÍRA.
OPIÐ HÚS VAR Í SKELJANESI.
Skemmtileg stemning var í Skeljanesi í gærkvöldi, góðar umræður og góð mæting. Sérstakur gestur okkar var Loftur E. Jónasson, TF3LJ / VE2AO sem hefur verið búsettur um árabil í Kanada. Erlendir gestir okkar voru YL-OM hjónin François van Laarhoven, PA1JFR og Hélène van Laarhoven, PA2HE frá Breda í Hollandi. Þau þekkja vel Elínu Sigurðardóttur, TF2EQ frá því að hún stundaði háskólanám í landinu, en hún var m.a. félagsmaður í sama amtörklúbbi og þau. Vel hittist á að Pier Albert Kaspersma, TF1PA (sem er hollenskur að uppruna) mætti á staðinn og var því töluð hollenska (að mestu) upp frá því. Þau voru mjög hrifin af aðstöðu félagsins.
Annars var mikið rætt um TF útileikana og bendir allt til góðarar þátttöku, en leikarnir verða haldnir um þessa helgi (7.-9. ágúst) og hefjast í dag (föstudag) kl. 18:00. Ljóst er að margir verða á ferðinni og munu taka þátt víða að á landinu. Mathías Hagvaag, TF3MH QSL stjóri ÍRA mætti með magn af innkomnum QSL kortum á staðinn og raðaði í hólf félagsmanna.
Þá kom Sigurður Óskar Óskarsson, TF2WIN með Icom IC-718 HF stöð sem sendi út á skertu afli. Stöðin var sett i samband við gerviálag (og síðar loftnet) í fjarskiptaherbergi TF3IRA. Í ljós kom, að um var að ræða stillingaratriði sem var lagað á staðnum. Loks kom Hans Konrad Kristjánsson, TF3FG með úrval af margskonar loftnetstengjum („N“, „PL“ o.fl.) sem hann fékk nýlega til landsins sem viðstöddum bauðst að kaupa við hagstæðu verði.
Þakkir til Sveins Goða Sveinssonar, TF3ID fyrir að annast kaffiveitingar. Alls mættu 22 félagsmenn og 4 gestir í Skeljanes þetta ágæta sumarkvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
TF ÚTILEIKAR ÍRA 2026.
Síðustu fjarskiptaleikar ÍRA á árinu verða haldnir helgina 7.-9. ágúst. Það eru TF útileikarnir og hefjast þeir kl. 18:00 laugardaginn 7. ágúst kl. 18:00 og lýkur kl. 18:00 sunnudaginn 9. ágúst.
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu ÍRA, vefslóð: https://www.ira.is/tf-utileikar/
Hægt er að taka þátt hluta keppnistímans – eða eins og hentar hverjum og einum. Bent er á að hægt er skrá sig strax á leikjavefinn á þessari vefslóð: https://leikar.ira.is/
Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í leikunum.
Fyrirspurnir má senda á vefslóðina: i[email protected]
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
TF3W Í EUROPEAN HF CHAMPIONSHIP 2026.
European HF Championship keppnin fór fram laugardaginn 1. ágúst. Þátttaka var í boði á tali og/eða morsi á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Um var að ræða 12 klst. keppni sem hófst á hádegi og lauk á miðnætti. Markmið keppninnar er að stuðla að samböndum á milli stöðva með QTH innan Evrópu.
Félagsstöðin, TF3W var QRV og virkjaði Sigurður Jakobsson, TF3CW stöðina frá Skeljanesi, bæði á morsi og tali. Hann keppti í einmenningsflokki á háafli á CW og SSB.
Fjöldi sambanda varð alls 1000. Skipting: 75% á morsi og 25% á SSB. Fjöldi margfaldara: 213 og heildarfjöldi punkta: 211.509. Skilyrði voru þokkaleg á 15, 20 og 40 metrum, en engin á 10 metrum og ekki sérstök á 80 metrum.
Þetta er góður árangur miðað við aðstæður! Sérstakar þakkir til Sigurðar R. Jakobssonar, TF3CW fyrir að virkja stöðina.
Stjórn ÍRA.
OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 6. ÁGÚST.
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fyrir félagsmenn og gesti fimmtudaginn 6. ágúst frá kl. 20:00 til 22:00.
Fundarsalur, fjarskiptaherbergi TF3IRA og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Við eigum von á erlendum leyfishöfum í heimsókn.
QSL stjóri ÍRA verður búinn að fara í pósthólf félagsins, flokka kort og raða í hólfin. Sveinn Goði Sveinsson, TF3ID mun annast kaffiveitingar.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
ALÞJÓÐLEGAR KEPPNIR HELGINA 8.-9. ÁGÚST.
WAE DX CONTEST, CW.
Keppnin hefst laugardag 8. ágúst kl. 00:00 og lýkur sunnudag 9. ágúst kl. 24:00.
Keppnin fer fram á CW á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RST + raðnúmer.
https://www.darc.de/der-club/referate/conteste/wae-dx-contest/en
YB BEKASI MERDEKA CONTEST.
Keppnin hefst laugardag 8. ágúst kl. 12:00 og lýkur sunnudag 9. ágúst kl. 11:59.
Keppnin fer fram á CW og SSB á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð YB stöðva: RS(T) + YB hérað (2 bókstafir).
Skilaboð annarra: RS(T) + DX.
http://bmc.orari-kotabekasi.com/
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
OPIÐ HÚS VAR Í SKELJANESI.
Opið hús var í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 30. júlí.
Góðar umræður voru m.a. um 2 metra bandið og notkunna á D-Star (m.a. Icom og Kenwood), C4FM (Yaesu) og DMR (ýmsir framleiðendur) – en leyfishafar dreifast m.a. á þessi þrjú „kerfi“, auk almennrar notkunar á tíðnum á FM á 2 metra bandinu. Fram kom, að menn voru ekki vissir hvort stafræni D-Star endurvarpinn í Bláfjöllum er QRV (sem hefur gátt yfir netið út í heim); QRG 439.950 MHz (RX) og 434.950 MHz (TX) -5 MHz. Hins vegar er DRM endurvaripinn TF3DMR í Skeljanesi QRV og einnig var staðfest, að menn eru að nota C4FM (System Fusion) kerfið.
Þá eru félagarnir m.a. að útbúa bílana fyrir TF útileikana sem nálgast. Þeir verða þetta árið haldnir til prufu helgina eftir verslunarmannahelgi; 7.-9. ágúst. Menn ætla að nota Hamstick stangarnet og/eða endafædd vírloftnet þar sem leikarnir fram á 160 m., 80 m., 40 m. og 60 m. Aðrir ætla að taka þátt frá heimastöðvum, sumarbústöðum, hjólhýsum o.fl.
Loks var rætt um European HF Championship keppnina um helgina. Þetta er aðeins 12 klst. keppni á CW og/eða SSB þar sem Evrópustöðvar keppa innbyrðis innan Evrópu. Hún hefst á laugardag 1. ágúst kl. 12:00 og lýkur kl. 23:59.
Erlendur gestur félagins var Berthold Bruckhoff, DO1BBM frá Marburg/Lahn í Þýskalandi. Berthold er á skemmtilegum Volkswagen ferðabíl sem er vel útbúinn tækjum og loftnetum. Hann sýndi okkur m.a. TX-500 HF stöð frá Lab 599 sem hann notar ásamt Icom 7100 sem vinnur á HF, VHF og UHF. Einar Kjartansson, TF3EK á einnig TX-500 stöð sem hann fer með á fjöll í SOTA vinnu.
Þakkir til Guðjóns Más Gíslasonar, TF3GMG fyrir afbragðsgott kaffi og og meðlæti og þakkir til Hans Konrads Kristjánssonar, TF3FG og Jónasar Bjarnasonar, TF3JB fyrir ljósmyndir.
Alls mættu 24 félagar og 3 gestir í Skeljanes þetta ágæta og veðurmilda sumarkvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
ÞORKELL GUNNARSSON, TF3AA ER LÁTINN.
Þorkell Gunnarsson, TF3AA hefur haft sitt síðasta QSO; merki hans er hljóðnað.
Samkvæmt upplýsingum frá dóttur hans lést hann nýlega í Reykjavík.
Þorkell var á 98. aldursári og var handhafi leyfisbréfs radíóamatöra nr. 23.
Um leið og við minnumst Þorkels með þökkum og virðingu færum við fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd stjórnar ÍRA,
Jónas Bjarnason, TF3JB
formaður
TF3W Í RSGB IOTA KEPPNINNI 2026.