Sameinuðu þjóðirnar og sérstofnanir þeirra eru stór vinnuveitandi sem stöðugt leitar að starfsfólki úr fjölbreyttum atvinnugreinum til starfa víðs vegar um heiminn.
Starfaauglýsingarnar eru flokkaðar í ákveðna flokka eftir kröfum um menntun og starfsreynslu. Laun og önnur fríðindi starfsfólks Saeminuðu þjóðanna fylgja þessum starfsflokkum en hægt er að lesa nánar um laun og fríðindi starfsfólks á vefsíðu mannauðsdeildar Sameinuðu þjóðanna.
Sameinuðu þjóðirnar veita fólki einstakt tækifæri til að starfa í fjölmenningarlegu umhverfi við ýmis störf til stuðnings alþjóðaverkefna.
Samtökin leita eftir hæfu og áhugasömu fólki sem trúa á markmið samtakanna og er tilbúið að sinna gefandi alþjóðlegum störfum á mismunandi vettvöngum. Hægt er að sækja um störf á svæðisskrifstofum Sameinuðu þjóðanna um allan heim.
Almennar upplýsingar um störf hjá Sameinuðu þjóðunum má finna á vef starfsmannahalds SÞ og þar er einnig hægt að nálgast lista yfir lausar stöður.
Nýtt kerfi mannauðsstjórnunar Sameinuðu þjóðanna, INSPIRA, er komið í loftið og hægt er að skrá sig inn í kerfið á https://inspira.un.org/.
Próf
Umsækjendur þurfa oft að taka samkeppnishæfa prófið National Competitive Recruitment Examinations þegar sótt er um ýmsar stöður innan Sameinuðu þjóðanna. Prófið er haldið árlega en markmið prófsins er að finna hæfileikaríkt og áhugasamt fólk til að vinna fyrir samtökin.