Afrek Montreal-sáttmálans – SÞ sérfræðingar telja að ósónlagið muni ná sér innan 40 ára
Samkvæmt nýrri skýrslu sem gefin er út í samvinnu Alþjóðaveðurfræðistofnunar SÞ, Umhverfisstofnunar SÞ, NASA, Viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna og framkvæmdastjórnar ESB hefur notkun efna sem ógna ósónlaginu minnkað um 99% síðan Montreal-sáttmálinn var undirritaður fyrir 35 árum síðan og því stuðlað verulega að endurnýjun ósónlagsins. Í skýrslunni kemur einnig fram að ef núverandi stefnur varðandi notkun þessara […]













