Síðustu fréttir og greinar

Mennta- og barnamálaráðherra afhent verkefni úr Heimsins stærstu kennslustund

Tvö ungmenni frá Ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, þau Íris Sævarsdóttir og Þröstur Flóki Klemensson, áttu fund með Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra, í dag 3. mars og afhentu honum verkefni nemenda sem unnin voru í Heimsins stærstu kennslustund 6. des. 2022. Heimsins stærsta kennslustund (e. World Largest Lesson) er árlegt átak sem snýr að […]


Utanríkisráðherra lagði áherslu á varðstöðu um lýðræði, frelsi og mannréttindi er hún ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í Genf á mánudaginn

Við upphaf 52. lotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna s.l. mánudag, ávarpaði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra mannréttindaráðið. Auk þess tók ráðherra þátt í mannúðarráðstefnu um Jemen og flutti ræðu fyrir hönd Norðurlanda á viðburði til stuðnings Úkraínu. Í stefnuræðu Íslands um alþjóðleg mannréttindamál fordæmdi hún harðlega innrás Rússlands í Úkraínu og minnti á skelfilegar afleiðingar stríðsins […]


Unnur Lárusdóttir nýr ungmennafulltrúi Íslands á sviði mannréttinda

  Unnur Lárusdóttir fulltrúi SÍNE (Sambands íslenskra námsmanna erlendis) var kjörin ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði mannréttinda, á Sambandsþingi LUF (Landssambands ungmennafélaga) sem haldið var s.l. laugardag á Háskólatorgi. Sex voru í framboði, en næstflest atkvæði hlaut Sólveig Ástudóttir Daðadóttir, fulltrúi Q-félags hinsegin stúdenta, og mun hún því starfa sem varafulltrúi.    Kjörinn […]


„Loftslagsbreytingar og átök valda gríðarlegri mannúðarþörf“

Kjartan Atli Óskarsson starfar sem aðstoðar verndarfulltrúi (e. Associate Protection Officer) hjá Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna (UNHCR) í Juba, í Suður Súdan. Kjartan er uppalinn á Akureyri og hefur menntað sig í bæði stjórnmálafræði og sagnfræði. Kjartan Atli sótti um ungliðastöðu JPO (Junior Professional Officer Programme) í gegnum Utanríkisráðuneytið. Staðan er styrkt af ráðuneytinu en um […]


Hópur íslenskra sérfræðinga í aðgerðastjórnun í rústabjörgun á hamfærasvæðum lentur á Tyrklandi

Hópur íslenskra sérfræðinga í aðgerðastjórnun í rústabjörgun á hamfærasvæðum  flaug til Tyrklands í gærkvöldi og lenti þar um kl 4 í nótt að íslenskum tíma. Upphaflega átti flugvél Landhelgisgæslunnar að fljúga með hópinn í gærdag, en vegna veðurs þurfti að fresta fluginu til næsta dags. En þar sem hver mínúta skiptir máli í hamförum sem […]


Oleksandra þurfti að flýja heimili sitt í austur hluta Úkraínu. Hún gisti með fjölskyldu sinni á heimavist í vesturhluta landsins. © UNHCR/Igor Karpenko

UNHCR lýsir yfir þakklæti vegna auka framlags Íslands til UNHCR árið 2022

Árið 2022 lagði Ísland fram tvöfalt hærra fjárframlag til UNHCR (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna) og er það stærsta fjárframlag sem Ísland hefur nokkru sinni lagt til UNHCR. Framlag Íslands var 4,2 milljónir bandaríkjadala sem eru um 600 milljónir íslenskra króna. Af framlaginu voru um 1,5 milljónir bandaríkjadala svokallað  óeyrnamerkt fjármagn, og er það þreföldun á slíku […]


Isabel Alejandra Díaz nýr ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði mennta, vísinda og menningar

Á fjórða fundi Leiðtogaráðs Landssambands ungmennafélaga (LUF) þann 24. janúar var Isabel Alejandra Díaz kosin ungmennafulltrúi Íslands á vegum Sameinuðu Þjóðanna, á sviði mennta, vísinda og menningar. Næst flestu atkvæðin hlaut Benedikt Bjarnason, fulltrúi Ung norræn, og mun hann starfa sem varafulltrúi. Þetta er í fyrsta skipti kosið er á lýðræðislegan hátt í stöðu ungmennafulltrúa […]


Skemmtilegt verkefni um lýðræði og heimsmarkmiðin

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum (FIV) hélt upp á viðburðaríkan dag 23. janúar s.l. um lýðræði og tengdi það við heimsmarkmiðin. Nemendur veltu fyrir sér hugtakinu lýðræði og hvernig það birtist í ýmsum myndum s.s. í friði og réttlæti, frelsi, menntun, sögunni og Íslandi. Einnig var farið yfir ýmsar tímalínur tengdar efninu.   Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum varð […]


Félag SÞ stýrir vinnu samráðsvettvangs félagasamtaka í landrýniskýrslu Íslands um heimsmarkmið SÞ

Þann 11. janúar síðastliðinn fór fram kynningarfundur um samráðsvettvang félagasamtaka um stöðu innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Árið 2019 skiluðu íslensk stjórnvöld síðast VNR landrýniskýrslu (e. Voluntary National Review) til Sameinuðu þjóðanna varðandi innleiðingu markmiðanna á Íslandi, en þetta árið munu frjáls félagasamtök fá að taka þátt við gerð skýrslunnar. Þannig munu íslensk félagasamtök […]


Valdefling kvenna á Amason svæði Brasilíu

Lutana Ribeiro er eini kvenkyns höfðingi Parque das Tribos, þar sem um 4.500 manns búa. Parque das Tribos er frumbyggjahverfi í Manaus, höfuðborg Amazona fylkis í Brasilíu. Ribeiro er dyggur mannréttindasinni og er vel þekkt í sínu samfélagi. Ég hef séð breytingu á konum sem höfðu ekkert hugrekki áður og grétu úti í horni af […]