Hleð síðu...
Skip to Content

Shopify / WooCommerce / DK

Samstilling vefverslunar og bókhaldskerfis


Hvernig virkar MR Connect?

Hafðu vefverslunina og bókhaldskerfið samstillt.

Sjálfvirknivæðing

Breytingar sem eiga sér stað í bókhaldskerfi, eins og t.d. birgðastaða og vörulýsing eru sjálfkrafa uppfærðar í vefversluninni. Þetta kemur í veg fyrir tvíverknað og tryggir að vefverslun og bókhaldskerfi séu ávalt samstillt.

Tímasparnaður

MR Connect sér til þess að útbúa löggiltan sölureikning og uppfæra bókhaldskerfið þitt í hvert einasta skipti sem sala fer fram í vefverslun.

Einfalt í uppsetningu

Þegar við höfum fengið öll gögn í hendur sem nauðsynleg eru fyrir uppsetningu tekur aðeins örfáa daga að klára ferlið. Við aðstoðum ykkur í gegnum allt ferlið.

Möguleikar á sérsmíði

Ef þú ert með uppsetningu sem MR Connect styður ekki fullkomnlega er alltaf möguleiki á sérsmíði. Hafðu samband við okkur og athugum í sameiningu hvort sá möguleiki er fyrir hendi.


Afhverju velja okkur?

1. Áreiðanleiki
MR Connect er samstarfsverkefni Codebear og Minn Rekstur ehf. Teymið samanstendur af tölvunarfræðingum og verkfræðingum með yfir 30 ára reynslu í hugbúnaðargerð, ásamt löggiltum endurskoðanda.
2. Einfaldleiki
MR Connect tekur örskamma stund í uppsetningu frá því að þú hefur samband við okkur og þar til við höfum lokið uppsetningu.
3. Sanngirni
Við kappkostum að bjóða kúnnum okkar bestu mögulegu kjör á markaðinum, ásamt því að vera ávalt til staðar ef einhverjar spurningar vakna.
4. Reynsla
Yfir 13.000 stofnaðir löggiltir sölureikningar og meira en 360.000 uppfærslur á vörum í gegnum MR Connect.

Umsagnir

"Sérfræðingar Minn Rekstur hafa aðstoðað okkur við sjálfvirkar greiningar á gögnum úr ólíkum kerfum sem notuð eru hjá VIRTUS. Vinnan hefur gengið vel og ávalt staðið áætlanir hvað varðar tíma og kostnað. Mikil fagmennska í greiningu verkefnisins í upphafi og eftirfylgni með réttri virkni frá upphafi hefur skilað sér í mjög gagnlegu stjórntæki í okkar rekstri."

— Þorkell Guðjónsson / VIRTUS bókhald & ráðgjöf

"Sérfræðingar Minn Rekstur hafa verið Kapital ráðgjöf innan handar þegar kemur að samstillingu DK við vefverslanir viðskiptavina okkar. Við mælum hiklaust með MR Connect."

— Pétur Björnsson / Kapital Ráðgjöf

"MR Connect hefur reynst mikil hagræðing fyrir SVFR. Sérfræðingar Minn Rekstur & CodeBear hafa verið liðlegir í samskiptum og þykja okkur vinnubrögð þeirra vera til sóma.

— Sigurþór Gunnlaugsson / Stangveiðifélag Reykjavíkur

"Við hjá Ömmu mús erum mjög ánægð með þjónustu MR Connect. Þeir sjá alveg um tenginguna á milli DK kerfisins og Shopify verslunarinnar okkar og passa upp á að allt gangi smurt fyrir sig. Ef eitthvað kemur upp á eru þeir fljótir að svara og leysa úr málinu. Við mælum hiklaust með MR Connect!"

— Amma mús / ammamus.is

Hafðu samband

Endilega hafðu samband ef þú hefur einhverjar spurningar

Sími
843 6565
Heimilisfang
Skipholt 50D, 2. hæð