Trento
Útlit

Trento (mállýska: Trént; ladínska: Trënt; þýska: Trient) er borg í norðausturhluta Ítalíu. Borgin er höfuðstaður héraðsins Trentínó-Suður-Týról og líka höfuðstaður samnefndrar sýslu. Íbúar voru um 120 þúsund árið 2026.[1]
Trento er í árdal árinnar Adige, um 150 km frá upptökunum í Alpafjöllum og 250 km frá árósunum við Adríahaf. Borgin er 55 km sunnan við borgina Bolzano og 95 km norðan við Veróna.