Skoska
Útlit
| Skoska Scots | ||
|---|---|---|
| Málsvæði | Skotland (Skosku láglöndin, Katanes, Norðureyjar), Norður-Írland og Norður-England | |
| Heimshluti | Bretlandseyjar | |
| Fjöldi málhafa | Skotland: 1,5 milljónir Norður-Írland: 30.000 Írland: nokkrir þúsund England: fáeinir | |
| Sæti | óþekkt | |
| Ætt | Indóevrópska | |
| Skrifletur | Latneskt stafróf | |
| Opinber staða | ||
| Opinbert tungumál |
hvergi | |
| Stýrt af | engum, en Dictionary of the Scots Language hefur mikil áhrif | |
| Tungumálakóðar | ||
| ISO 639-1 | enginn | |
| ISO 639-2 | sco | |
| SIL | sco | |
| ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. | ||
Wikipedia: Skoska, frjálsa alfræðiritið
Skoska (Scots) er vesturgermanskt, enskt tungumál sem talað er í láglöndum Skotlands og á Norðureyjum, ásamt hluta Norður-Írlands, þar sem hún nefnist ulster-skoska (Ulstèr-Scotch). Skoska er stundum nefnd lágskoska (skoska: Lallans; enska: Lowland Scots) til þess að greina hana frá skoskri gelísku, keltneskri tungu sem töluð er í skosku hálöndunum og á Suðureyjum.
Sumir telja skosku enska mállýsku en ekki aðgreint tungumál. Þetta er ágreiningsmál á meðal málvísindamanna.
