Kvikmynd
Kvikmynd er sjónlistaverk þar sem sögur, hugmyndir, reynsla, skynjun og tilfinningar eru tjáðar með hreyfimynd. Hefðbundin kvikmynd er gerð úr röð mynda sem sýndar eru hratt svo persónur og hlutir á myndinni virðast hreyfast. Þetta stafar af sjóntregðu mannsaugans þar sem myndir haldast stutta stund á sjónhimnunni.[1][2] Hefðbundnar kvikmyndir eru búnar til með kvikmyndavélum sem taka margar myndir upp á filmu eða á stafrænu formi. Hljóð er einnig tekið upp á hljóðrás sem er samhæfð við kvikmyndina svo áhorfandinn upplifir hljóðið í samhengi við myndirnar. Teiknimyndir eru gerðar úr teiknuðum myndum eða með tölvubúnaði.
Í kvikmyndagerð eru stundum notaðar tæknibrellur til að skapa atriði og áhrif sem ekki eiga sér stoð í veruleikanum. Áhorfandinn frestar dómi um sanngildi þess sem hann sér og lifir sig inn í kvikmyndina. Kvikmyndir eru almennt álitnar mikilvægt listform sem hefur þann tilgang að skemmta, segja sögur, mennta og upplýsa áhorfendur, beita áróðri og veita innblástur. Áhorfendur þurfa yfirleitt ekki sérstaka kunnáttu til að njóta kvikmynda sem geta því höfðað til fólks um allan heim. Talrás kvikmynda er þýdd ýmist með talsetningu eða skjáþýðingu. Kvikmyndir eru mikilvægur hluti menningar sem þær bæði endurspegla og skapa.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Fyrstu kvikmyndirnar
[breyta | breyta frumkóða]Undir lok 9. áratugar 19. aldar var fundin upp ljósmyndafilma úr tréningi og kvikmyndatökuvélar sem tóku ljósmyndir hratt upp á filmuna með því að opna ljósopið mörgum sinnum hratt um leið og filmunni var rennt framhjá því. Þannig varð til kvikmyndafilma sem var undin upp á spólu.[3][4][5][6]
Elsta kvikmynd sem varðveist hefur er Roundhay Garden Scene frá 1888. Myndin er þrjár sekúndur og sýnir fólk, klætt í spariföt, dansandi um í garði. Leikstjóri myndarinnar var hinn franski Louis Le Prince. Alls komu fjórar myndir út það ár. Þrjár af þeim voru gerðar af Le Prince. Þær voru Roundhay Garden Scene, Accordion Player og Traffic Crossing Leeds Bridge. Sú fjórða var Horse and Rider Jumping Over an Obstacle, gerð af hinum þýska Ottomar Anschütz. Til að horfa á þessar fyrstu myndir þurfti áhorfandinn að leggja augað að linsu sérstaks tækis, eins og Electrotachyscope,[7][8] Kinetoscope,[9] eða Mutoscope.[10] Undir lok 10. áratugarins voru fundnar upp sýningarvélar sem gátu varpað myndinni upp á kvikmyndatjald svo margir áhorfendur gátu horft á myndina í einu.[11]
Þróun listformsins
[breyta | breyta frumkóða]Fyrstu kvikmyndirnar voru mjög stuttar og sýndu eitt atvik með einni samfelldri óhreyfðri töku.[9] Klippingar eða önnur tækni kvikmyndalistar voru ekki komnar til sögunnar. Mynd af verkafólki á leið úr verksmiðju Lumière í Lyon er dæmi um slíka mynd. Sjónarhornið er beint á dyr verksmiðjunnar og fólkið fer út og beygir svo til hægri eða vinstri.[12][13][14] Í bandarísku myndinni A Trip Down Market Street var myndavélin staðsett á kláfvagni í San Francisco og hreyfðist því eftir teinum.[15]
Í byrjun 20. aldar tók kvikmyndagerðarfólk að setja nokkur atriði saman til að segja sögu. Með því að setja atriðin saman í eina samfellda kvikmynd verður til samfella í hugum áhorfenda sem er forsenda allrar sagnamennsku í kvikmyndagerð. Ef ein mynd sýnir til dæmis konu horfa út um glugga, mun áhorfandi túlka næsta atriði (hvað sem það er) sem það sem konan var að horfa á. Í fyrstu voru þetta stöðugar tökur frá einu sjónarhorni, en seinna hóf fólk að taka atriði upp út frá fleiri sjónarhornum.[16] Myndin Tunglferðin sem franski sjónhverfingamaðurinn Georges Meliés gerði árið 1902, er talinn vera fyrsta myndin með alvöru handriti. Myndin sjálf er þögul, en ákveðnir hlutir líkjast nútímakvikmyndahandriti. Þegar þessar fyrstu þöglu myndir voru sýndar í kvikmyndahúsum var gjarnan fenginn píanóleikari eða organisti til að leika undir og byggja með því undir andrúmsloftið í myndinni.[17][18] Þegar kom fram á 3. áratuginn fylgdu myndinni nótur með undirleik.[19]

Þegar fyrri heimsstyrjöld braust út stöðvaðist kvikmyndagerð til afþreyingar í Evrópu, meðan hún blómstraði á sama tíma í Bandaríkjunum, sérstaklega með uppgangi Hollywood í Kaliforníu. Á þessum tíma gerði D. W. Griffith myndirnar Fæðing þjóðar (1915) og Umburðarleysi (1916).[20] Fæðing þjóðar var fyrsta „stórmynd“ bandarískrar sögu, þar sem ein saga er sögð í langri kvikmynd (myndin var allt að þrír tímar í sýningu og fyllti 12 spólur).[21] Eftir að styrjöldinni lauk komu fram evrópskir kvikmyndagerðarmenn á borð við Sergei Eisenstein,[22][23] Friedrich Wilhelm Murnau[24][25] og Fritz Lang.[26][27] Þeir mótuðu listformið sem naut ört vaxandi vinsælda meðal almennings. Gamanleikarar sem hófu feril sinn í revíum á sviði, eins og Charlie Chaplin og Buster Keaton, áttu líka stóran þátt í þróun kvikmyndagerðarinnar og kvikmyndaiðnaðarins.[28][29]
Hljóðmyndir
[breyta | breyta frumkóða]Seint á 3. áratug 20. aldar var tækni til að taka upp og fjölfalda hljóð komin á það stig að hægt var að skapa hljóðrás fyrir kvikmyndir með tónlist og tali, sem var samhæfð við myndina.[30][31] Þessar myndir voru kallaðar „talmyndir“ (talkies á ensku).[32][33][30] Eldri myndir voru þá kallaðar þöglar myndir, en þær þóttu fljótt úreltar og voru nær alveg horfnar af markaði í Bandaríkjunum um 1931.[34][35] Árið 2013 var talið að aðeins um 14% af bandarískum kvikmyndum frá tíma þöglu myndanna hefðu varðveist á upprunalegu formi.[35][36]
Árið 1927 kom fyrsta talmyndin út. Hún fékk nafnið Djasssöngvarinn (The Jazz Singer), gerð af bandaríska leikaranum Alan Crosland. Myndin notaðist við Vitaphone-kerfið frá Warner Bros þar sem hljóðrásin var sett á grammófónplötu sem var tengd við sýningarvélina til að samhæfa hljóð og mynd.[37][30] Fyrsta myndin í fullri lengd sem notaðist við þetta kerfi var Don Juan (líka eftir Alan Crosland), en í henni er ekkert talað. Á sama tíma fundu þrír þýskir uppfinningamenn upp Tri-Ergon-aðferðina til að taka hljóð upp á kvikmyndafilmuna með því að breikka hana úr 35 mm í 42 mm til að koma þar fyrir ljóstónræmu. Þýska kvikmyndafyrirtækið Tobis Film tók þessa aðferð upp 1928. Þessi aðferð var notuð við framleiðslu stórmynda á borð við King Kong (1933).[38][37]
Hljóðið hafði mikil áhrif á allar hliðar kvikmyndagerðar. Háværir ljósbogalampar sem áður voru notaðir til að lýsa upp tökustaði viku fyrir glóperum,[39] staðla þurfti hraða afspilunar í kvikmyndahúsum við 24 ramma á sekúndu, auk þess sem leikarar urðu að breyta um leikstíl og aðlagast hljóðupptökutækjum. Sumar stjörnur þöglu myndanna áttu erfitt með að aðlagast nýjum miðli og hurfu úr sviðsljósinu.[40] Ljóstónrásin varð brátt ríkjandi aðferð við fjölföldun og afspilun hljóðs, en hún var af lágum gæðum, einrása og veik fyrir truflunum vegna rispa og ryks á filmunni. Aðferðir til að draga úr truflunum fólu í sér að takmarka tíðnisvið afspilunar sem leiddi til þess að myndirnar fengu „holan hljóm“.
Þegar sjónvarpið kom til sögunnar reyndu kvikmyndahúsin að endurnýja afspilunartækni kvikmynda til að halda stöðu sinni. Árið 1952 kom Cinerama breiðtjaldstæknin til sögunnar með þremur sýningarvélum og allt að sjö rása hljóðtækni með hágæða hljóði af segulböndum.[41] Þessi tækni var mjög mannaflsfrek og því ekki á færi nema stærstu kvikmyndahúsa. Breiðtjaldstæknin fyrir kvikmyndir (CinemaScope og Panavision) var þó komin til að vera og breiddist hratt út um heiminn á 6. áratugnum. Árið 1976 komu Dolby Laboratories fram með tækni til að prenta tvær ljóstónrásir á 35 mm filmur (Dolby Stereo)[42] og með sérstakri tækni var hægt að ná allt að 4 rásum úr þeim.[43] Kvikmyndir á borð við Stjörnustríð (1977) og Hárið (1979) nýttu sér þessa tækni. Á sama tíma komu fram filmur með segulræmu fyrir hljóðupptöku (Super 8) sem urðu vinsælar í upptökutækjum til heimilisnota.[44] Til að draga úr vandamálum með hljómgæði í ólíkum kvikmyndahúsum var THX-staðallinn mótaður af Lucasfilm fyrir sýningar á myndinni Jedinn snýr aftur 1983.[45] Snemma á 10. áratug 20. aldar tóku svo stafræn hljóðkerfi eins og Dolby Digital við.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Jóhann Hannesson (23.2.1964). „Úr sögu kvikmyndanna“. Lesbók Morgunblaðsins. bls. 1.
- ↑ „Þróunarsaga kvikmyndanna í stuttu máli“. Sýningarmaðurinn. bls. 5.
- ↑ Sanders, Vicki A (2023). „Celluloid Film | History | Research Starters | EBSCO Research“. EBSCO (enska). Sótt 29 júní 2026.
- ↑ French, Robert. „The cameras that brought photography to the people“. Museums Victoria. Sótt 29 júní 2026.
- ↑ Pickford, Mary. „The Early History of Motion Pictures | American Experience | PBS“. www.pbs.org (enska). Sótt 29 júní 2026.
- ↑ Lesso, Rosie (12 ágúst 2024). „Who Invented the First Motion Picture Camera?“. TheCollector (enska). Sótt 29 júní 2026.
- ↑ „Ottomar Anschutz at Historic Camera“. www.historiccamera.com. Sótt 28 júní 2026.
- ↑ „Ottomar Anschütz perfected the zootrope | Camera Museum“. www.cameramuseum.ch. Sótt 28 júní 2026.
- 1 2 „A very short history of cinema“. The National Science and Media Museum. 18 júní 2020. Sótt 29 júní 2026.
- ↑ Roos, Dave (27 febrúar 2025). „How Movie Theaters Got Their Start in America“. HISTORY (enska). Sótt 30 júní 2026.
- ↑ Pickford, Mary. „Early Movie Audiences“. www.pbs.org (enska). Sótt 29 júní 2026.
- ↑ Lattanzio, Ryan (22. mars 2020). „On This Day in 1895, the Lumière Brothers Debuted Their First Film and Changed the World“. IndieWire (bandarísk enska). Sótt 30 júní 2026.
- ↑ „Louis Lumière. Sortie d'usine (Workers Leaving the Lumière Factory). 1895 | MoMA“. The Museum of Modern Art (enska). Afrit af upprunalegu geymt þann 18. desember 2024. Sótt 30 júní 2026.
- ↑ „Sortie d'usine, [IV]“. Catalogue Lumière (franska). 3. desember 2013. Sótt 30 júní 2026.
- ↑ Chokshi, Niraj (14 apríl 2018). „Found Footage Offers a New Glimpse at 1906 San Francisco Earthquake“. The New York Times. Sótt 30 júní 2026.
- ↑ „Changes in Film Style in the 1910s“. University of Wisconsin–Madison. Sótt 30 júní 2026.
- ↑ Nguyen, Sophia (11 júní 2018). „Not "Mickey Mousing": the rigors of accompanying silent films“. Harvard Magazine (enska). Sótt 30 júní 2026.
- ↑ Ross, Alex (22. desember 2025). „The Organists Improvising Soundtracks to Silent Films“. The New Yorker (bandarísk enska). ISSN 0028-792X. Sótt 30 júní 2026.
- ↑ Pruitt, John (19. desember 1993). „Between Theater and Cinema: Silent Film Accompaniment in the 1920s“. American Symphony Orchestra (bandarísk enska). Sótt 30 júní 2026.
- ↑ Kizirian, Shari (20 janúar 2020). „1917: The Year That Changed the Movies“. San Francisco Silent Film Festival (bandarísk enska). Sótt 1 júlí 2026.
- ↑ Hubbert, Julie (2011). Celluloid Symphonies: Texts and Contexts in Film Music History. University of California Press. bls. 12. ISBN 978-0-520-94743-6.
- ↑ „Sergei Eisenstein: Films That Shook the World“. BAMPFA (enska). 27 nóvember 2017. Sótt 5 júlí 2026.
- ↑ Ashley (13. desember 2024). „The Lost Films of Sergei Eisenstein: A Window into Cinema's Alternative History“. Cornell University Press (bandarísk enska). Sótt 5 júlí 2026.
- ↑ „F. W. Murnau: Voyages into the Imaginary“. BAMPFA (enska). 12 nóvember 2021. Sótt 5 júlí 2026.
- ↑ „Friedrich Wilhelm Murnau 1888-1931“. www.dhm.de (þýska). Sótt 5 júlí 2026.
- ↑ „Fritz Lang & German Expressionism“. BAMPFA (enska). 25 október 2018. Sótt 5 júlí 2026.
- ↑ „Fritz Lang: 10 essential films“. BFI (enska). 4. desember 2015. Sótt 5 júlí 2026.
- ↑ „United Artists created“. HISTORY (enska). 13 nóvember 2009. Sótt 5 júlí 2026.
- ↑ Ferrier, Aimee (27 febrúar 2023). „Was 1927 the most revolutionary year for cinema?“. faroutmagazine.co.uk (bandarísk enska). Sótt 6 júlí 2026.
- 1 2 3 „Experimentation with Sound | MoMA“. The Museum of Modern Art (enska). Sótt 15 júlí 2025.
- ↑ admin (8 nóvember 2021). „What Was The First Film With Sound?“. Mack Sennett Studios (bandarísk enska). Sótt 5 júlí 2026.
- ↑ „Talmyndir“. Fálkinn. 6.7.1929. bls. 6.
- ↑ „When did the Silent Film Era End?“. Kodak Digitizing. Sótt 15 júlí 2025.
- ↑ „The Silent Film Era“. Museum of the Moving Image (bandarísk enska). Sótt 6 júlí 2026.
- 1 2 Barnes, Mike (4. desember 2013). „'Alarming' Study Shows Just How Few Silent Films Have Survived“. The Hollywood Reporter (bandarísk enska). Sótt 6 júlí 2026.
- ↑ Child, Ben (4. desember 2013). „Vast majority of Hollywood silent films lost forever, study confirms“. The Guardian (bresk enska). ISSN 0261-3077. Sótt 6 júlí 2026.
- 1 2 „A brief history of sound in film“. National Science and Media Museum blog (bresk enska). 13. september 2021. Sótt 23. mars 2023.
- ↑ Sonnenschein, David (2001). Sound Design: The Expressive Power of Music, Voice and Sound Effects in Cinema.
- ↑ Allen, Bob (Autumn 1995). „Let's Hear It For Sound“. AMPS Newsletter. Association of Motion Picture Sound. Afrit af upprunalegu geymt þann 8 janúar 2000. Sótt 13. desember 2009.
- ↑ Taryn Flaherty (16. nóvember 2023). „10 Silent Movie Stars Who Didn't Make It in the Talkies“. Movieweb.
- ↑ Hart, Martin B. „Cinerama“. The American WideScreen Museum. Sótt 6 október 2012.
- ↑ Beck, Jay (2016). Designing sound: audiovisual aesthetics in 1970s American cinema. New Brunswick, New Jersey. ISBN 978-0-8135-6415-9. OCLC 945447753.
- ↑ „Dolby Surround Sound“. Margo.student.utwente.nl. Sótt 23 júlí 2015. [óvirkur tengill]
- ↑ „Home-movie sound gets easier—and more professional“. Popular Mechanics. 144 (4). Hearst Magazines: 64. október 1975. Sótt 24 júlí 2012.
- ↑ Rinzler, J.W. (2010). The Sounds of Star Wars. San Francisco: Chronicle Books. bls. 146. ISBN 978-0-8118-7546-2.