Jon Ossoff
| Jon Ossoff | |
|---|---|
Ossoff árið 2021. | |
| Öldungadeildarþingmaður fyrir Georgíu | |
Núverandi | |
| Tók við embætti 20. janúar 2021 | |
| Forveri | David Perdue |
| Persónulegar upplýsingar | |
| Fæddur | 16. febrúar 1987 Atlanta, Georgíu, Bandaríkjunum |
| Þjóðerni | Bandarískur |
| Stjórnmálaflokkur | Demókrataflokkurinn |
| Maki | Alisha Kramer (g. 2017) |
| Börn | 2 |
| Háskóli | Georgetown-háskóli (BS) London School of Economics (MSc) |
| Undirskrift | |
Thomas Jonathan Ossoff (f. 16. febrúar 1987) er bandarískur stjórnmálamaður sem hefur verið þingmaður á öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir Georgíu frá árinu 2021. Ossoff er meðlimur í Demókrataflokknum og er yngsti sitjandi þingmaður öldungadeildarinnar.
Á yngri árum var Ossoff í starfsnámi hjá þingmanninum og mannréttindafrömuðinum John Lewis. Hann varð síðar aðstoðarmaður þingmannsins Hanks Johnson. Áður en Ossoff fór í framboð stýrði hann fyrirtæki sem framleiddi heimildarmyndir, meðal annars um spillingu og mannréttindabrot.[1]
Ossoff var kjörinn á þing í öldungadeildarkosningunum 2020 með 1,3 prósenta forskoti gegn David Perdue, sitjandi þingmanni Repúblikanaflokksins.[2]
Ossoff var endurkjörinn með um 59 prósentum atkvæða í öldungadeildarkosningum árið 2026.[1][3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- 1 2 „Sigurinn ýtir undir vangaveltur um forsetaframboð“. mbl.is. 4. nóvember 2026. Sótt 16. nóvember 2026.
- ↑ Kristinn H. Guðnason (4. nóvember 2026). „Er þetta næsti forseti Bandaríkjanna? – Líkt við Barack Obama“. DV. Sótt 16. nóvember 2026.
- ↑ „Vonarstjarna demókrata heldur sæti sínu“. mbl.is. 4. nóvember 2026. Sótt 16. nóvember 2026.