Fara í innihald

iPod

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kynslóðir iPod-spilara. Frá hægri til vinstri: iPod Shuffle, iPod Nano, iPod Classic, iPod Touch.

iPod var lína stafrænna tónlistarspilara, sem hannaðir voru og markaðssettir af Apple. iPod hefur einfalt notendaviðmót, sem hannað er í kringum miðlægt skrunhjól (undantekning er þó iPod shuffle og iPod Touch). iPod classic geymir gögn á hörðum diski, en smærri gerðirnar, iPod shuffle, iPod nano og iPod touch, geyma gögnin í flash-minni.

Eins og flestir stafrænir tónlistarspilarar getur iPod einnig nýst sem gagnageymslutæki. Ipodar eru til í mörgum litum s.s. gráum, bláum, grænum, bleikum og fleira.

Saga og hönnun

[breyta | breyta frumkóða]

iPodinn var upphafið að innreið Apple á tónlistarmarkaðinn. Á þeim tíma voru stafrænar myndavélar og mp3-spilarar frekar stórir og klunnalegir.

Vélbúnaðarverkfræðingur Apple, Jon Rubinstein, setti saman teymi verkfræðinga til þess að hanna iPodinn, m.a Tony Fadell og hönnuðinn Jonathan Ive. Varan var hönnuð og þróuð á innan við ári og kynnt almenningi þann 23. október 2001.[1] Steve Jobs, framkvæmdastjóri Apple, sagði að með iPod, með 5 GB minni, gætir þú haft „þúsund lög í vasanum“.[2]

Apple fékk utanaðkomandi fyrirtæki, Pixo, til að hanna notendaviðmót iPodsins undir stjórn Steve Jobs.[3]

Þann 27. júlí 2017 tók Apple iPad Nano og Shuffle út af markaði, sem markaði endalok framleiðslu Apple á sjálfstæðum tónlistarspilurum.[4] Þann 10. maí 2022 hætti Apple sölu á iPad Touch sem var síðasta varan í línunni.[5]

Hugbúnaður

[breyta | breyta frumkóða]

iPod getur spilað lög á skráarsniðunum MP3, ACC, M4A og AIFF ásamt fleirum. iPod styður ekki MIDI, Ogg eða FLAC hljóðskráarsniðin. Með iPod photo var einnig hægt að skoða myndir á JPEG-, BMP-, GIF-, TIFF- og PNG-sniðum. Fimmtu kynslóðar iPodar geta einungis spilað myndefni sem þjappað er með MPEG-4 þjöppunarstaðlinum.

Upphaflega var iPodinn einungis til notkunar með Apple-tölvum. En annarrar kynslóðar iPodar virkuðu með Windows.

Notendaviðmót

[breyta | breyta frumkóða]

Skrunhjól iPodanna hefur nokkra takka.

  • Menu: Staðsettur efst á hjólinu, hægt er að bakka í viðmótinu með honum.
  • Center: Í miðju hjólsins, notaður þegar velja á valmöguleika.
  • Play / Pause: Neðst á hjólinu, setur lag af stað eða stoppar það.
  • Skip Forward / Fast Forward: Hægra megin, spólar áfram.
  • Skip Backwards / Fast Reverse: Vinstra megin, spólar til baka.

Skipt er um valmöguleika með því að "skrolla" um viðmótið.

iPod touch er með snertiskjá líkt og iPhone og hefur því ekki skrunhjól.

Stýrikerfi

[breyta | breyta frumkóða]

Stýrikerfi iPodsins er geymt í vinnsluminni tækisins, sem er 32 MB. Fimmtu kynslóðar tæki hafa þó 64 MB vinnsluminni.

Vélbúnaður

[breyta | breyta frumkóða]

Tengimöguleikar

[breyta | breyta frumkóða]

Upphaflega var FireWire-tengi Apple notað til þess að tengja iPodinn við tölvu en seinna kom á markaðinn 30 pinna USB 2.0 tengi sem gerði iPodinn aðgengilegri í annars konar tölvum.

Rafhlaða iPodsins er einnig hlaðin með því að stinga USB-snúrunni í straumbreyti sem síðan er settur í innstungu.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Guglielmo, Connie (23 október 2021). „What it was like to watch Steve Jobs introduce the iPod 20 years ago“. CNET. Afrit af uppruna á 23 október 2021. Sótt 23 október 2021.
  2. ↑ „A History of the iPod: 2000 to 2004“. Lowendmac.com. Afrit af upprunalegu geymt þann 28 ágúst 2011. Sótt 15 ágúst 2011.
  3. ↑ Shayer, David (17 ágúst 2020). „The Case of the Top Secret iPod“. TidBITS. Afrit af uppruna á 18 ágúst 2020. Sótt 18 ágúst 2020.
  4. ↑ „Goodbye iPod, and Thanks for All the Tunes“. WIRED (bandarísk enska). Afrit af uppruna á 29 júlí 2017. Sótt 1 ágúst 2017.
  5. ↑ „The music lives on“. Apple Newsroom (bandarísk enska). Afrit af uppruna á 11 júlí 2023. Sótt 10 maí 2022.
  Þessi Applegrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.