Hawaii
Hawaii
Hawaiʻi (havaíska) | |
|---|---|
| |
| Viðurnefni: The Aloha State (opinbert), Paradise of the Pacific, The Islands of Aloha, The 808 State | |
| Kjörorð: havaíska: Ua Mau ke Ea o ka ʻĀina i ka Pono | |
Staðsetning Hawaii í Bandaríkjunum | |
| Land | |
| Varð opinbert fylki | 21. ágúst 1959 (50. fylkið) |
| Höfuðborg (og stærsta borg) | Honolulu |
| Stærsta sýsla | Honolulu |
| Stjórnarfar | |
| • Fylkisstjóri | Josh Green (D) |
| • Varafylkisstjóri | Sylvia Luke (D) |
| Þingmenn öldungadeildar |
|
| Þingmenn fulltrúadeildar |
|
| Flatarmál | |
| • Samtals | 28.311 km2 |
| • Land | 16.638 km2 |
| • Vatn | 11.672 km2 (41,2%) |
| • Sæti | 43. sæti |
| Stærð | |
| • Lengd | 2.450 km |
| Hæð yfir sjávarmáli | 920 m |
| Hæsti punktur | 4.205,0 m |
| Lægsti punktur (Kyrrahaf) | 0 m |
| Mannfjöldi (2020)[1] | |
| • Samtals | 1.455.271 |
| • Sæti | 40. sæti |
| • Þéttleiki | 82,6/km2 |
| • Sæti | 13. sæti |
| Heiti íbúa | Havaíbúar |
| Tungumál | |
| • Opinbert tungumál |
|
| Tímabelti | UTC−10:00 |
| Póstnúmer | HI |
| ISO 3166 kóði | US-HI |
| Stytting | H.I. |
| Breiddargráða | 18°55'N til 28°27'N |
| Lengdargráða | 154°48'V til 178°22'V |
| Vefsíða | hawaii.gov |
Hawaii, eða Hawaii-eyjar (stundum skrifað Havaí eða Havaíeyjar), er eyjaklasi í Kyrrahafinu og eitt af 50 fylkjum Bandaríkjanna. Hawaii er einnig stærsta eyjan í Hawaii-eyjaklasanum og gengur oft undir nafninu „Stóra eyjan“ (The Big Island). Íbúar Hawaii eru rúmlega 1,44 milljónir (2022).
Orðsifjar
[breyta | breyta frumkóða]Á frummáli eyjaskeggja, hawaiísku, nefnist eyjan „Hawai‘i“, en úrfellingamerkið ('Okina á hawaiísku) táknar skyndilegt stopp eins og í miðri upphrópuninni „Oh-ó“ (Ritað ʔ í Alþjóðlega hljóðstafrófinu). Honolulu er stærsta borgin og höfuðborg fylkisins. Næststærsta eyjan er Maui.
Seint á 19. öld og í upphafi 20. aldar voru Hawaiieyjar kunnar undir nafninu Sandwich Islands, og nefndust þá á íslensku Sandvíkureyjar. Halldór Laxness kallar Hawaii í einu verka sinna Háeyju sem er hljóðlíking.
Jarðfræði
[breyta | breyta frumkóða]Hawaiieyjar eru austasti og jafnframt yngsti hluti Hawaii-Emperor eyjaklasans. Heiti reiturinn, sem er undir Stóru eyjunni, myndaði Hawaii-Emperor eyjaklasann þar sem Kyrrahafsplatan færðist yfir hann. Slóðin sem heiti reiturinn skilur eftir sig á Kyrrahafsflekanum kallast eyjaröð. Eftir því sem eyjarnar færast fjær heita reitnum verða þær útrænu öflunum auðveldari bráð og hafið sverfur þær smátt og smátt niður. Oft byggjast upp kóralrif á þeim neðansjávarfjöllum sem eyjarnar eru.
Þær átta eyjar sem teljast til Hawaiieyja eru, talið frá vestri til austurs, Ni'ihau, Kauai'i, O'ahu, Moloka'i, Lana'i, Kahoʻolawe (óbyggð), Maui og Hawai'i.
Eldfjöll eru á eyjunum, gjarnan dyngjur, þekktust þeirra er Mauna Kea. Önnur þekkt eldfjöll eru Mauna Loa og Kīlauea.
Langás eyjaklasans liggur norðvestur-suðaustur og má af því sjá að Kyrrahafsplatan hefur verið og er að færast til norðvesturs (að því gefnu að heiti reiturinn sé ekki að hreyfast).
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Historical Population Change Data (1910–2020)“. Census.gov. United States Census Bureau. Afrit af upprunalegu geymt þann 29 apríl 2021. Sótt 1 maí 2021.