Englischer Garten
Englischer Garten (enski garðurinn) er stór almenningsgarður í miðbæ München í Bæjaralandi og nær garðurinn frá miðbæ til norðausturhluta borgarinnar. Byrjað var á garðinum árið 1789 undir umsjón Benjamin Thompson (1753-1814) sem síðar var Rumford greifi (Reichsgraf von Rumford) og var garðurinn gerður fyrir prinsinn Karl Theódór kjörfursta í Bæjaralandi. Eftirmenn Thompson stækkuðu og endurbættu garðinn.

Englischer Garten er einn stærsti almenningsgarður í heimi og nær yfir svæði sem er 3,7 km2 (1,4 sq mi)(370 ha eða 910 ekrur). Nafnið enski garðurinn vísar til garðforms sem einkennist af óformlegu landslagi en slík garðhönnun var vinsæl á Englandi frá miðri 18. öld til upphafs 19. aldar og einkum tengdur við landslagsarkitektinn og garðyrkjumanninn Capability Brown.
Þegar Karl Theódór kjörfursti erfði hásæti Bæjaralands af Maximilian III sem lést barnlaus árið 1777 þá ákvað hann að flytja ekki til München heldur búa áfram í Mannheim á Rín og reyndi án árangurs að selja þetta erfðagóss sitt til Suður-Niðurlanda. Íbúar München voru ósáttir við að kjörfurstinn sýndi þeim slíka fyrirlitningu. Karl Theódór kjörfursti lagði mikla áherslu á endurbætur í borginni til að blíðka borgarbúa. Hann stofnsetti meðal annars listagallerí í norðurhluta hallargarðsins Hofgarten og opnaði bæði hallargarðinn og nýja galleríið fyrir almenningi árin 1780 og árin 1781.
Þó að Hofgarten væri þá eini almenningsgarðurinn í München var það ekki aðalástæðan fyrir stofnun ensku garðsins. Það var frekar hluti af hernaðarlegum umbótum sem gerðar voru undir leiðsögn Benjamin Thompson (síðar Rumford greifa) en hann var vann að endurskipulagningu hersins og var skipaður stríðsráðherra í Bæjaralandi. Thompson fæddist í Massachusetts og barðist sem konungssinni í Bandaríska frelsistríðiðu og hafði flutt til Englands eftir ósigur Breta og síðan flutt til meginlands Evrópu þar sem hann gekk í þjónustu Karls Theódórs árið 1784.

Árið 1788 lagði Thompson til að á friðartímum ætti meirihluti hermanna í her kjörfurstans að fá leyfi til að vinna borgaralega vinnu, svo sem landbúnað og garðyrkju. Í febrúar 1789 fyrirskipaði Karl Theódór að það ætti að mæla út og koma í gagnið sérstöðum hergörðum í öllum borgum þar sem hersveitir hefðu aðsetur í þeim tilgangi að veita hermönnum góða landbúnaðarþekkingu og einnig skyldu garðarnir vera ætlaðir til afþreyingar og vera aðgengilegir almenningi.
Hergarðinn í München átti að skipuleggja norður af Schwabinger-borgarhliðinu á svæði sem hafði verið veiðilönd höfðingja Wittelsbach ættarinnar frá miðöldum. Sá hluti veiðilanda konungs sem næstur var miðbænum Hirschanger (dádýragarðurinn) var frá upphafi hluti af hergarðinum en svæðið Hirschau (sem þýðir einnig dádýragarður) sem var fjær miðbænum og lengra norður og þéttari skógur í suðri þekktur sem Schangerwald (dádýraskógurinn) voru upphaflega ekki hluti af hergarðinum. Allt þetta svæði var flóðasvæði, í flóðahættu frá ánni Isar sem München stendur við, örlítið í austri. Byggður var flóðgarðurinn Riedl-Damm árið 1790 og hafði verkfræðingnum Anton von Riedl umsjón með byggingu hans.
Bygging hergarðsins hófst í júlí 1789 og þá á svæði sem var um 800 x 200 metrar og var það svæði fljótlega tilbúið til ræktunar . Fljótlega breyttist hugmynd um að stofna tiltölulega lítinn hergarð í að koma upp almenningsgarði þar sem hergarðurinn ætti að vera aðeins lítill hluti. Þann 13. ágúst 1789 gaf Karl Theódór út tilskipun þar sem Hirschanger var gerður að skemmtigarði fyrir íbúa í München. Garðyrkjumaðurinn Friedrich Ludwig Sckell sem hafði lært lað gera landslagsgarða á Englandi var kallaður til München sem ráðgjafi. Ýmis tengd verkefni voru sett upp sem hluti af þróun garðsins, þar á meðal Elevengarten (nemendagarður) en það var garður ætlaður fyrir nemendur í herskóla sem þá var nýstofnaður, "Schweizerey" (kúabú), "Schäfery" (sauðfjárbú) og "Ackerbauschule" (ræktunarskóli) til að bæta búskapartækni og "Vihearzneyschule" (dýralækningaskóli). Flest þessara verkefna voru fljótlega lögð niður nema dýralæknaskólinn sem varð að því sem nú er Tierärztliche Fakultät (Dýralæknaskóli) LMU München. Hliðið frá 1790 má sjá við innganginn í Veterinärstraße að garðinum. Garðurinn var upphaflega nefndur garður Theodórs eftir kjörfurstanum en garðurinn varð fljótlega þekktur undir nafninu Enski garðurinn. Vorið 1792 var garðurinn formlega opnaður fyrir um 40.000 borgara í München.


Thompson fór frá München árið 1798. Eftirmaður hans lagði áherslu á landbúnaðarnotkun í garðinum og stækkaði svæðið til fá meira beitarland. Garðyrkjumaðurinn Sckell sem hafði verið upphaflegur ráðgjafi við hönnun garðsins kom svo aftur að umsjón garðsins og hafði eftirlit með honum (1804-1823) og á því tímabili var þróunin sú að hverfa frá landbúnaðarnotkun og leggja áherslu á landslagið. Þannig voru til dæmis tvær vindmyllur á þeim stað þar sem Schwabingerbach (Schwabing straumur) skilst frá Eisbach (ísstraumur, straumur í ánni Isar) fjarlægðar og útbúinn þar foss á árunum 1814-1815.

Undir stjórn Sckell tók garðurinn á sig núverandi mynd. Eina mikilvæga viðbót við garðinn frá tíma hans er að gerð var hæð við Monopteros (staður í garðinum þar sem er Apolló musteri). Á 20. öld voru gerðar smávægilegar viðbætur í garðinn, einkum árið 1952 við um þrjátíu hektara af landi þar sem áður var járnbrautarverksmiðja og árið 1958-1962 bættust við 67 hektara frá Hirschauer Forst (Hirschau skógi). Í síðari heimsstyrjöldinni skemmdu sprengjuárásir bandamanna Monopteros og eyðilögðu kínverska turninn og 93.000 rúmmetrum af rusli var hent í Hirschanger. Svæðið var ekki hreinsað fyrr en árið 1953 en þá var settur þar upp íþróttavöllur fyrir skóla.
Samgöngumannvirki hafa einnig skaðað eðli garðsins, einkum með byggingu árið 1963 á Isarring sem er hluti af aðalhringveginum í München. Isarring skiptir garðinum rétt norður af Kleinhessaeloher See. Í lok 20. aldarinnar vildu borgaryfirvöld í München að byggja sporvagn í gegnum garðinn norður af kínverska turninum, þar sem nú er vegur aðeins notaður af rútum;[1] Þeim áformum var andmælt af ríkisstjórn Bæjaralands sem á landið, og Bayerische Verwaltungsgerichtshof hafnaði svo þeirri áætlun.[2]



Náttúruhamfarir hafa einnig valdið tjóni, mörg tré eyðilögðust í óveðrum árin 1964, 1988 og 1990 ("Wiebke" stormurinn); og hollenskur álm-sjúkdómur hefur næstum eyðilagt álm-tré garðsins. Í tilefni af 200 ára afmæli garðsins árið 1989 skipulagði Abendzeitung ("Kvöldblað") í München á árunum 1989 til 1990 söfnunarátak til að fá ný tré. Það voru gróðursett 1500 ný tré, þar af þúsund álmtré af afbrigði sem er ónæmt fyrir hinum hollenska álmsjúkdómi.
Seint á 19. öld komu allt að 5000 þjónustufólk, handverksmenn, hermenn og nemendur til kínverska turnsins snemma á sunnudagsmorgni til að dansa og hljómsveit lék undir. Dansinn hófst um fimm að morgni og endaði um átta um morguninn svo þjónustufólk gætu snúið aftur til að taka til morgunmat fyrir húsbændur sína eða farið í kirkju. Dansinn var þekktur sem Kocherlball (Kokkadansinn). Árið 1904 var þessi dansskemmtun bönnuð af lögreglunni þar sem hún þótti ekki nógu siðprúð. Þessi dans var endurvakinn árið 1989 sem liður í að fagna 200 ára afmæli garðsins með dansleik þar 4000 dansarar tóku þátt. Frá þeim tíma hefur kokkadansiball verið haldið á hverju ári í júlí.
Í garðinum var upphaflega Apollo-musteri úr tré en þegar það var komið í niðurníðslu var byggt nýtt musteri úr steini og er það um 16 m hátt, byggt á 15 m uppistöðum og í kringum það var gerð lítil hæð árið 1832.
Í apríl 1972, til að fagna Sumarólympíuleikunum það ár, sem haldnar voru í München, var japanskt tehús og japanskt garður útbúið á lítilli eyju í suðurhluta Englischer Garten, bak við Haus der Kunst. Eyjan er út í vatni sem var búið til árið 1969. Tehúsið var gjöf til Bæjaralands frá Soshitsu Sen, yfirmanni Urasenke te skólans í Kyoto, og það var hannað af Soshitsu sen og Mitsuo Nomura. Hefðbundin japönsk teathöfn er haldin þar reglulega.[3]
Milli Monopteros og japanska tehússins er Schönfeldwiese en þar má vera nakinn í sólbaði.
Kínverska turninn er 25 metra hár trébygging, fyrst byggð 1789 til 1790. Turninn er fimm hæðir: jarðhæð þakið er 19 m í þvermál, efsta hæðin 6 m.
Skammt fyrir norðan kínverska turninn er Rumford-Saal (Rumford hús) lítil bygging í Palladian stíl og er það nefnt til heiðurs stofnanda garðsins, Benjamin Thompson, Rumford greifa. Það var byggt árið 1791. Byggingin er nú notuð af borgaryfirvöldum í München sem miðstöð barna ("Kinderfreizeitstätte").
Kleinhesseloher See er vatn í garðinum. í því eru þrjár eyjar. Vatnið er 86.410 fermetrar. Þrjár eyjar eru í vatninu, það eru Königsinsel (Konungseyjan, 2.720 m2), Kurfürsteninsel (Kjörfurstaeyjan 1,260 m2) og Regenteninsel (Ríkisstjóraeyjan), 640 m2).
Enska garðurinn er klofinn í tvo hluta af Isarring veginum. Suðurhlutinn er um 2 km langur, en norðurhlutinn, sem kallast Hirschau, er um 3 km langur. Mjög margir leggja leið sína í suðurhlutann og eru þar opin svæði fyrir íþróttir og sólböð. Í norðurhlutanum er miklu friðsælla og náttúrulegra umhverfi, þar er gras ekki slegið, þar eru engi og sauðfé á beit.
Í einum hinum tilbúnu straumum og lækjum sem renna í gegnum Englischer Garten hefur verið komið upp straumbylgju þar sem má vera á brimbretti.
Í norðurhluta garðsins er lítið útileikhús sem byggt var árið 1985.
Tölfræði
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ E. Müller-Jentsch, "Stadt will Trambahn durch den Englischen Garten Geymt 26. maí 2005 í Wayback Machine", SZ 14.04.1994.
- ↑ F. Müller, "Keine Trambahn im Englischen Garten Geymt 13. desember 2004 í Wayback Machine", SZ 21.05.2001; A. Dürr, Tram durch den Englischen Garten gestoppt Geymt 16. október 2008 í Wayback Machine", SZ 30.03.2006.
- ↑ Schmid (1989), 33; G. Staufenbiel in Freyberg (2000), 134; Teehaus KanShoAn Geymt 6. júlí 2008 í Wayback Machine, webpage of Urasenke München - Gesellschaft der Freunde des Teewegs e.V.; W. Palten in Freyberg (2000), 289.
- ↑ Biller and Rasp (2006), 118. The area of 4.17 km2 given by the Bavarian Palace Department's page, "Dimensions Geymt 7. febrúar 2017 í Wayback Machine", includes various parks that do not belong to the English Garden proper.
- ↑ "Dimensions Geymt 7. febrúar 2017 í Wayback Machine", information page of the Bavarian Palace Department