Fara í innihald

Eldvarp

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eldvarp á Kīlauea, Hawaii
Eldgos á Fimmvörðuhálsi 2010

Eldvarp er hóll eða hæð úr gosefnum sem hlaðist hefur upp umhverfis gosop. Eldvörp hafa einnig verið nefnd rauðakúlur, kerhólar, gíghólar og eldgígar og eru gjarnan kölluð gígar í daglegu máli. Á Wikipediu má finna grein um eldgíga, en hefur hér þrengri skilgreiningu og vísar eingöngu til sjálfrar dældarinnar sem myndast getur í kringum gosop.

Eldvörp eru mismunandi að gerð, allt eftir því hvers eðlis gosið er og hversu kraftmikið. Nefna má gjallgíga, klepragíga, og gjóskugígur.

Gjallgígar og klepragígar

[breyta | breyta frumkóða]

Gjallgígar og klepragígar eru algengastir eldstöðva á Íslandi.[1] Þeir myndast í blandgosum (úr hraungosum og sprengigosum).[2]

Þeir liggja gjarnan í röðum, svokölluðum gígaröðum, á gossprungum þar sem jarðeldur kemur aðeins upp einu sinni. Þekktasta dæmið eru gígaraðirnar á Lakasvæðinu.[1]

Hver gígur er frá því að vera 5–10 metrar á hæð upp í það að rísa fáeina tugi eða jafnvel 100–200 metra yfir umhverfi sitt (t.d. Eldfell á Heimaey).

Gígaröðin er oftast slitrótt, þ.e. sést sem röð af sprunguhlutum og er hver hluti jafnan hliðraður miðað við þann næsta.[1]

Gjallgígar eru lausir í sér og fremur reglulega lagaðir og hafa þá lögun keilu eða haugs (t.d. Rauðamelskúlur). Klepragígar, sem eru mjög líkir hinum, eru fastari fyrir og þar mynda hraunkleprarnir kleggja og klif, enda verða gígarnir flestir ólögulegir og hnúskóttir (t.d. gígarnir við Leirhnjúk á Kröflusvæði). Gígarnir eru líka mjög oft skeifulaga vegna þess að hraunrennsli heldur opinni rás frá gosopinu og þar rís ekki veggur úr gjalli eða kleprum (sbr. Stóra-Grábrók).[1]

Hins vegar er líka algengt að gígarnir í röðum séu einhvers konar blanda af báðum fyrirbærunum, semsagt blanda gjall- og klepragíga.[1]

Efnið sem kemur upp í sprungugosum gjall- og klepragíga er basalt. En til þess að einmitt slíkir gígar myndist þarf basaltið að vera af nokkru seigari og þróaðri tegund en mest þunnfljótandi og frumstæðasta basaltið, sem leiðir til myndunar eldborga eða dyngja.[1]

Eldgosið atast með mestum krafti fyrstu klukkustundirnar eða dagana. Misháir kvikustrókar standa þá upp úr gossprungunum. Algeng hæð kvikustrókanna er 50–100 metrar, en þeir geta líka verið allt upp í 1000 metra háir. Því aflmeiri sem strókurinn er, og hér er ekki síst átt við gasinnihald, þeim mun meira af gjósku sáldrast úr honum.[1]

Í flestum tilvikum dregst gosvirknin fljótlega nokkuð saman. Kvikan gusast upp í aðgreindum strókum og grófa efnið úr þeim sest til utan um hvern strók, nær að loða saman og byggir upp gígveggi og -rima úr hálfbráðnu efni.[1] *Svoleiðis byggist gígurinn upp á meðan gosið er í gangi. Í gígveggjunum eru líka skörð sem hraunið rennur út um.[2]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 3 4 5 6 7 8 Ari Trausti Guðmundsson, Ragnar Th. Sigurðsson: Íslenskur jarðfræðilykill. Reykjavík, Mál og Menning, 2004
  2. 1 2 http://www.ismennt.is/not/helgahe/lokaverkefni/Eldfjoll.htm Geymt 5. mars 2016 í Wayback Machine Ismennt; skoðað: 30.10.2015