Fara í innihald

Akranes

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Akraneskaupstaður
Loftmynd af Akranesi
Loftmynd af Akranesi
Skjaldarmerki Akraneskaupstaðar
Staðsetning Akraneskaupstaðar
Staðsetning Akraneskaupstaðar
Hnit: 64°19′01″N 22°05′00″V / 64.3170°N 22.0833°V / 64.3170; -22.0833
LandÍsland
KjördæmiNorðvesturkjördæmi
ÞéttbýliskjarnarAkranes
Stjórnarfar
 • BæjarstjóriHaraldur Benediktsson
Flatarmál
 • Samtals9 km2
 • Sæti60. sæti
Mannfjöldi
 (2025)
 • Samtals8.285
 • Sæti9. sæti
 • Þéttleiki920,56/km2
Póstnúmer
300
Sveitarfélagsnúmer3000
Vefsíðaakranes.is

Akraneskaupstaður er kaupstaður á Skipaskaga á Vesturlandi og var áður kallaður Skipaskagi, enn í daglegu tali Skaginn. Þar bjuggu 7.948 í nóvember 2022.

Akranes heitir í raun allt nesið milli Hvalfjarðar og Leirárvoga og trónir Akrafjall á því miðju. Nesið skiptist frá fornu fari milli tveggja hreppa: Akraneshrepps að sunnan og vestan og Skilmannahrepps norðan og austan. Á 19. öld fór að myndast þéttbýli í kringum sjósókn og verslun á Skipaskaga yst á nesinu. Árið 1885 var ákveðið að skipta Akraneshreppi í tvennt vegna hinna ólíku hagsmuna þéttbýlisins og sveitarinnar. Varð kauptúnið og næsta nágrenni þess að Ytri-Akraneshreppi en sveitin inn með Akrafjalli að Innri-Akraneshreppi. Ytri-Akraneshreppur hlaut kaupstaðarréttindi árið 1942 og hét eftir það Akraneskaupstaður.

Enn í dag er sjávarútvegur mikilvægasti atvinnuvegur bæjarins en verslun er einnig mikilvæg svo og iðnaður. Í bænum er sementsverksmiðja sem starfrækt hefur verið síðan á 6. áratug 20. aldar og á Grundartanga skammt frá bænum er álver sem starfað hefur síðan 1998.

Knattspyrna hefur lengi verið í hávegum höfð á Akranesi og lið bæjarins, ÍA, hefur löngum verið í fremstu röð á Íslandi. Í sveitarfélaginu er Skólahljómsveit Akraness.

Hvalfjarðargöngin sem vígð voru 1998 voru mikil samgöngubót fyrir Akranes og styttu verulega akstursleiðina til Reykjavíkur. Með tilkomu þeirra hætti Akraborgin siglingum sínum milli Reykjavíkur og Akraness.

Á Akranesi eru leikskólar, grunnskólar og framhaldsskóli.