1502
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1502 (MDII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Torfi Jónsson í Klofa lét drepa Lénharð „fógeta“ á Hrauni í Ölfusi.
- Benedikt Hersten lét af hirðstjórn á Íslandi.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Sigmundur Steinþórsson prestur á Miklabæ og Breiðabólstað í Vesturhópi.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]

- 1. janúar - Portúgalskir landkönnuðir sigldu inn í Guanabraflóa í Brasilíu og héldu að hann væri fljót sem þeir nefndu Rio de Janeiro.
- 12. febrúar - Ísabella 1. af Kastilíu gerði múslima brottræka úr Kastilía.
- 14. apríl - Ívan mikli varð einvaldur í Rússlandi.
- 3. maí - Portúgalski sæfarinn João da Nova uppgötvaði (hugsanlega) Sankti Helenu.
- 9. maí - Kristófer Kólumbus fór í fjórðu og síðustu ferð sína til Ameríku, kom þá til nokkurra Mið-Ameríkulanda og flutti með sér kakóbaunir til Evrópu.
- 30. júní - Kólumbus og menn hans urður fyrstu Evrópubúarnir til að hitta Maja.
- 13. september var stórorrustan við Smolinavatn í Líflandi. Þar sigraði þýska riddarareglan her Rússa undir stjórn Ívans 3. og stemmdi stigu við útþennslu Rússlands í Eystrasaltslöndunum.
- 7. nóvember - Ismail 1. stofnaði Safavídaríkið.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Montesúma 2. varð keisari Asteka.
- Englendingar, Frakkar og Portúgalir hófu fiskveiðar á Nýfundnalandsmiðum.
- Fyrstu þrælar Nýja heimsins komu á eyjuna Hispaníóla.
- Ríkið Gullna hordan leystist í sundur í Asíu.
- Háskóli var stofnaður í Wittenberg.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 1. janúar - Ugo Buoncompagni, seinna Gregoríus 13. páfi.
- 6. júní - Jóhann 3. konungur Portúgals.
- dags. ókunn - Miguel López de Legazpi fyrsti landstjóri Portúgala á Filippseyjum.