1450
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1450 (MCDL í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- 27. nóvember - Langaréttarbót gerð í Kaupmannahöfn af Kristjáni konungi 1. Tilgangur hennar var að koma á frið og lögum í landinu og þar er bann lagt við ribbaldaskap, ránsferðum og gripdeildum, fjölmennum yfirreiðum valdssmanna og fleiru slíku og mönnum bannað að halda „manndrápara, biskupsdrápara, prestadrápara, kirknabrjóta og kirknaþjófa".
- 30. nóvember - Torfi Arason fékk riddarabréf hjá Kristjáni 1. Danakonungi.
- Jón Þorkelsson varð ábóti í Helgafellsklaustri.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Solveig Björnsdótti, hefðarkona (d. 1495).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Þorsteinn ábóti í Helgafellsklaustri.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 26. febrúar - Francesco Sforza sat um Mílanó og sigraði borgina. Hann varð hertogi veldis sem ríkti í öld, Hertogadæmið Mílanó.
- 2. ágúst - Kristján 1. krýndur konungur Noregs í Niðarósdómkirkju af Marcellusi Skálholtsbiskupi. Samningur gerður um að Noregur og Danmörk skyldu lúta sama konungi að eilífu og að ríkin skyldu hafa jafna stöðu.
- 12. ágúst - Hundrað ára stríðið: Cherbourg, síðasta vígi Englendinga í Normandí, gafst upp fyrir Frökkum.
- 19. september - Keisarinn Yingzong sneri aftur til Kína (Mingveldið) eftir að hafa verið í gíslingu Mongóla.
- 3. nóvember - Háskólinn í Barcelona stofnaður.
- 23. nóvember - Albanir hrökktu um 100.000 Ottóman-hermenn frá landi sínu.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Jóhann Gutenberg fékk lán til stofnunar prentsmiðju sinnar hjá Jóhanni Fust í Mainz og setti prentáhöld sín að veði. Yfirleitt er þetta ár talið upphafsár prentlistarinnar.
- Machu Picchu, háfjallastaður Inka var hugsanlega í byggingu.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Bartolomeu Dias, portúgalskur landkönnuður (d. 29. maí 1500).
- (sennilega) - Hieronymus Bosch, hollenskur listmálari (d. 1516).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 9. febrúar - Agnes Sorel, ástkona Karls 7. Frakkakonungs (f. 1421).
- 8. apríl - Sejong mikli, konungur Kóreu (f. 1397).
- 18. júlí - Frans 1., hertogi af Bretagne (f. 1414).
- Bengt Jönsson Oxenstierna, sænskur aðalsmaður (f. ca. 1390)