1402
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1402 (MCDII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Svarti dauði barst til Íslands með skipi sem kom til Hvalfjarðar frá Englandi. Sóttin geisaði í landinu til 1404 og er talin hafa lagt að velli þriðjung landsmanna.
- Pétur Nikulásson Hólabiskup fór úr landi og kom ekki aftur. Hann hélt þó embættinu til dauðadags 1410 eða 1411.
- 25. desember - Fólk kom saman á Grenjaðarstað og hét á Guð og Maríu mey „mót þeirri ógurlegu drepsótt sem þá fór vestur eftir landinu“, segir í Grímsstaðaannál.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Þorsteinn Eyjólfsson, hirðstjóri og lögmaður á Urðum.
- Halldóra abbadís í Kirkjubæ og sex aðrar nunnur þar.
- Sveinbjörn Sveinsson ábóti á Þingeyrum. Aðeins einn munkur lifði eftir í klaustrinu.
- Ingibjörg Örnólfsdóttir abbadís í Reynistaðarklaustri.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 14. júní - Zhu Di, varð nýr keisari Mingveldisins eftir að hafa sameinað norður- og suður-Kína.
- 26. júní - Orrustan við Casalecchio: Hertoginn af Mílanó, Gian Galeazzo Visconti, sigraði her Bologna og Flórens en dó skömmu síðar.
- 20. júlí - Orrustan við Ankara: Timur sigraði soldán Ottómana, Bajesíð I, og tók hann höndum.
- 15. ágúst - Hinrik 3., konungur Kastilíu-León samdi frið við hálfbróður sinn João 1. Portúgalskonung.
- 5. nóvember - Lýðveldið Genúa tók við yfirráðum á Mónakó.
- 25. nóvember - Lög voru sett í Englandi þar sem Wales-búum var bannað að setjast þar að, gegna embættum, bera vopn eða kvænast enskum konum.
- 2. desember - Timur náði yfirráðum yfir Smyrna og lét taka af lífi kristna íbúa þar sem vildu ekki snúa til íslam.
- Hinrik 3. af Kastilíu sendi franska landkönnuðinn Jean de Béthencourt til að nema Kanaríeyjar.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 1. ágúst - Játmundur af Langley, fyrsti hertogi af York.
- 3. september - Gian Galeazzo Visconti, fyrsti hertogi af Mílanó (f. 1351).