1340
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1340 (MCCCXL í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Einstaklega góður vetur sunnanlands á Íslandi, svo að menn mundu vart slíkan.
- Þetta ár og tvö næstu voru samkvæmt annál Gísla Oddssonar biskups mjög mikil eldgosaár. Telur Gísli í annálnum upp fjöll víða um land sem hann segir hafa gosið. [1]
- Björn Þorsteinsson ábóti í Munkaþverárklaustri fluttist í Þingeyraklaustur og varð ábóti þar.
- Guðmundur Sigurðsson lét af embætti lögmanns sunnan og austan.
- Ketill Þorláksson, hirðstjóri, kom aftur til landsins.
Fædd
Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 26. janúar - Játvarður 3. Englandskonungur lýsti sig konung Frakklands.
- 6. mars - Kirkjuyfirvöld í Bæheimi veittu leyfi til hernaðar gegn trúvillingum.
- 1. apríl - Niels Ebbesen drap Geirharð 3. hertoga af Holtsetalandi í Randers.
- 7. júní - Rotterdam hlaut borgarréttindi.
- 24. júní:
- Hundrað ára stríðið: Englendingar eyddu nær öllum franska flotanum í orrustunni við Sluys.
- Valdimar atterdag varð konungur Danmerkur.
- 25. september - Frakkar og Englendingar sömdu um vopnahlé.
- 30. október - Konungsríkið Kastilía og Portúgal sigruðu leiðtoga Mára í Granada í orrustunni við Río Salado.
Fædd
- 6. mars – John af Gaunt, fyrsti hertoginn af Lancaster (d. 1399).
- Ágúst - Hákon 6. Magnússon Noregskonungur (d. 1380).
- 31. mars – Ívan 1. af Moskvu (f. 1288).
- 2. nóvember - Niels Ebbesen, dönsk þjóðhetja.