Um F-Droid

Í 15 ár hefur F-Droid verið meira en forritasafn: það hefur verið heilt samfélag.

Forrit á F-Droid eru frjáls og með opinn grunnkóða (FOSS), þau virða einkalíf þitt og þau eru aðgengileg hverjum þeim sem vill skoða grunnkóðann, byggja á honum og bæta.

Við höfum sýnt fram á að dreifing forrita getur verið gagnsæ, virði persónuvernd og sé ábyrg, og þannig sett staðla sem skora á notendur og framleiðendur snjalltækjabúnaðar að gera betur.

Áhrif okkar mælast ekki bara í útgefnum forritum, heldur í því frelsi, trausti og stafrænum réttindum sem við höfum hjálpað til við að verja.

Hjálpaðu okkur við að vernda samfélagsdrifna nýsköpun og viðhalda markmiði okkar um gagnsæi, persónuvernd og valdeflingu notenda.

Markmið okkar

Við viljum veita traustvekjandi leið til að finna og deila FOSS-forritum fyrir Android. Við verndum persónuupplýsingar, setjum notendur við stjórnvölinn og byggjum allt upp í opnu, samfélagsdrifnu vistkerfi.

Hvers vegna nota F-Droid?

  • Persónuverndarvænt: Enga aðganga þarf til að sækja forrit. Við fylgjumst ekki með því sem þú setur upp og val forrita hjá okkur miðast við persónuvernd og frelsi notenda.
  • Öruggt og traust: Forrit eru yfirfarin varðandi öryggisvandamál áður en þeim er bætt í safnið.
  • F-Droid er ókeypis fyrir alla: Þú þarft ekki að borga neitt til að geta notað F-Droid og við birtum ekki auglýsingar.
  • Frelsi þitt er í fyrsta sæti: Forritin á eru öll frjáls hugbúnaður. Þú mátt skoða grunnkóðann, breyta honum, byggja á honum og bæta. Ekkert er falið. Ekkert til að loka þig inni.

Hvernig virkar þetta?

Þú byrjar á því að sækja F-Droid forritið. Inni í því geturðu síðan flett eða leitað að forritum og sett upp þau sem þér líst á. Þegar forritin eru uppfærð hjálpar F-Droid þér við að halda þeim af nýjustu gerð á tækinu þínu.

Hver rekur F-Droid?

F-Droid er gert af sjálfboðaliðum sem er umhugað um frjálsan hugbúnað. Þeir vinna saman að því að halda F-Droid öruggu og einföldu í notkun. Ef þú hefur áhuga á að fylgjast með eða taka þátt, þá ættirðu að skoða GitLab.

Til að komast í gang

Ertu til í að prófa F-Droid? Náðu í forritið og uppgötvaðu þúsundir frjálsra og öruggra forrita fyrir tækið þitt.

Ertu forritari? Skoðaðu F-Droid á GitLab eða sendu inn forritið þitt til að komast í gang.

Hafðu samband

Hafðu samband við teymið eða við aðra þátttakendur til að spyrja spurninga og miðla reynslu þinni:

Fediverse: @[email protected]Follow us on our Mastodon and join the conversation.
Matrix: #fdroid:f-droid.orgTo see all of the F-Droid Matrix rooms, join the "space" that groups all F-Droid related rooms together at #fdroid-space:f-droid.org.
Forum: forum.f-droid.orgJoin our free software conversations and get support on Discourse.
Telegram…There is also a Matrix bridge to Telegram, to join it click this link.
XMPP…XMPP users can join via a Biboumi gateway that connects to IRC. The easiest way is to ask your XMPP server admin to host one, but if not possible, try one of the public ones. Copy and paste the address in your XMPP clients channel input field #fdroid%[email protected] (hosted by JabberFR) or #fdroid%[email protected] (hosted by hmm.st).
IRC: #fdroid on OFTC…Join the #fdroid channel on OFTC. Or click here to join the web chat but set a proper nickname, not qwebirc*.
Email: [email protected]You can reach the team via email at [email protected]. Support questions are much more likely to be answered on the forum or #fdroid channel.

Lærðu meira um F-Droid vistkerfið

Ráðgjöf / Greidd aðstoð

Ertu að nota F-Droid í fyrirtæki eða félagi og langar til að fá liðsinni sérfræðinga? Við erum með lista yfir þátttakendur í F-Droid sem bjóða ráðgjafarþjónustur. Við getum hjálpað við að hvítþvo (whitelabel) F-Droid, innfella tæknilögin inn í verkefnin þín og útbúa séreiginleika sem henta þínum sérstöku þörfum.

Finndu sérfræðing í F-Droid

Þátttakendur

F-Droid verkefnið var stofnað árið 2010 af Ciaran Gultnieks og er í boði að minnsta kosti eftirfarandi eintaklinga:

Ef þú hefur lagt eitthvað af mörkum til F-Droid og nafnið þitt vantar, eru það væntanlega mistök og þú ættir að bæta sjálfum þér á listann! Hafðu með notandanafnið þitt á Weblate ef þú ert þýðandi. Haltu listanum röðuðum miðað við skírnarnöfn.